Þriðji geirinn er mikils virði fyrir samfélagið í heild sinni 27. nóvember 2010 06:45 Dr. Lars Svedberg flutti erindi á opnun Fræðaseturs þriðja geirans.Fréttablaðið/Anton
Fræðasetur þriðja geirans svokallaða tók formlega til starfa í Háskóla Íslands (HÍ) í gær. Um er að ræða stofnun sem mun fjalla um þau félagasamtök eða stofnanir sem ekki eru reknar af opinberum aðilum og ekki í hagnaðarskyni. Að setrinu standa Félagsráðgjafardeild og Stjórnmálafræðideild HÍ ásamt samtökunum Almannaheill. Í tilefni af opnun fræðasetursins kom sænski prófessorinn Lars Svedberg, einn af fremstu fræðimönnum þessa sviðs, til landsins og hélt fyrirlestur um stöðu þriðja geirans á krepputíma. Í samtali við Fréttablaðið segist Svedberg þó ekki geta spáð fyrir um hvaða áhrif efnahagshrunið muni hafa á þriðja geirann hér á landi. Hins vegar megi margt læra af fyrri dýfum í íslensku efnahagslífi. „Þið hafið upplifað mun meiri sveiflur í þessum málum en hin Norðurlöndin og það er merkilegt að sjá að þið hafið jafnan komið vel út úr þessum lægðum, þannig að ég held að ykkur muni takast það aftur." Þriðji geirinn muni eflaust snúa sterkur til baka, enda liggi það í eðli þess konar starfs. „Þriðji geirinn virðist oft standa í skugga markaðarins eða ríkisins en fyrr eða síðar kemur hann aftur upp og skilar sínu verki. Í gegnum árin hafa slíkir hópar komið og farið, en í stað þeirra koma jafnmargir og jafnvel fleiri." Áhyggjuefni er, að mati Svedbergs, sú tilhneiging að krafist sé breytinga á starfsemi innan þriðja geirans. Stöðlun og samræming við aðra geira geti grafið undan hefðbundnu starfi. „Það er tvíbent, þar sem það getur haft þann kost að starfsemi aðila í þriðja geiranum getur orðið faglegri og skilvirkari. Hins vegar er líka hætta á því að þeir missi tengingu sína við almenning, en það er afar mikilvægt samfélaginu að allir hafi tækifæri á að láta rödd sína heyrast á þeim vettvangi." Það er því álit hans að þriðji geirinn verði að halda sérstöðu sinni sem vettvangur þar sem almenningur geti tjáð skoðanir sínar og veitt ríkjandi öflum aðhald. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira