Forseti Íslands mætir á Alþjóða efnahagsþingið í Davos 27. janúar 2010 10:42 Davos í Sviss.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur þegið boð Alþjóða efnahagsþingsins (World Economic Forum) um að sitja ársþing þess í Davos í Sviss sem haldið er í þessari viku. Þingið sækir fjöldi forystumanna ríkja víða að úr veröldinni, fjölmenn sveit áhrifamanna í fjármálum, atvinnulífi og fjölmiðlun, sem og margir stjórnendur viðskiptabanka og seðlabanka. Þingið er einn helsti vettvangur skoðanaskipta og stefnumótunar í efnahagsmálum og er haldið í Davos á hverju ári. Forseti mun taka þátt í umræðum í nokkrum málstofum á vettvangi alþjóðaþingsins sem og í aðalfundum þess. Þar verður meðal annars fjallað um viðbrögðin við hinni alþjóðlegu fjármálakreppu, samstarf ríkja við endurskipulagningu fjármálakerfis sem og ný viðhorf í ljósi þeirrar reynslu sem kreppan hefur fært þjóðum heims. Ólafur Ragnar hefur samþykkt beiðnir nokkurra fjölmiðla um viðtöl meðan á þátttöku hans í alþjóðaþinginu í Davos stendur. Einnig mun hann hitta að máli forystumenn ýmissa ríkja og aðra áhrifamenn í alþjóðamálum. Þingið hefst í dag miðvikudaginn 27. janúar og tekur forseti þá þátt í umræðum um viðbrögð stjórnvalda við hinni alþjóðlegu fjármálakreppu og hvernig hægt sé að leggja grundvöll að auknum stöðugleika í framtíðinni. Alþjóðaþinginu lýkur laugardaginn 30. janúar en þann dag mun Ólafur Ragnar einnig taka þátt í umræðum um hvernig endurreisn efnahagslífs geti komið í veg fyrir varanlegt atvinnuleysi. Þess má geta að Davos er í svissnesku Ölpunum.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira