Innlent

Neysla á kindakjöti snar minnkaði

Mynd/Valgarður Gíslason
Neysla á kindakjöti snar minnkaði í fyrra og hefur hún ekki verið minni síðan núgildandi söluskráning hófst fyrir 30 árum.

Neyslan nam rösklega 6200 tonnum, en framleiðslan var tæplega 2600 tonn, umfram það. Gengislækkun krónunnar var lán í óláni, því hún skapaði svigrúm til stór aukins útflutnings á lambakjöti í fyrra þannig að ekki varð teljandi birgðasöfnun. Annars dróst kjötneysla almennt saman um rösk 6% í fyrra. Mest er framleitt af kindakjöti, og þar var samdrátturinn langmestur, eða rösk 16% eins og áður sagði.

Næst mest er framleitt af alifuglakjöti, en þar nam samdrátturinn hátt í 4%. Samdráttur í svínakjötsneyslu nam tæplega 4,5% og hrossakjötsneysla minnkaði um um tæp 3%. Undantekning frá þessum samdrætti er, að sala á nautakjöti jókst um tæp 4% í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×