Lögregla hafi frumkvæði að brottvísun erlendra glæpamanna 27. janúar 2010 16:10
Vinnuhópur dómsmála- og mannréttindaráðherra um aukið eftirlit með útlendingum til að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi leggur til að að frumkvæði að beitingu brottvísana verði fært til lögreglu sem undirbúi mál til ákvarðanatöku hjá Útlendingastofnun. Lögreglan annist þannig undirbúning máls í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og ábyrgðin á því liggi hjá því lögregluembætti sem rannsakar mál viðkomandi útlendings. Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, setti vinnuhópinn á fót í desember síðastliðnum til að kanna möguleika innan gildandi laga og alþjóðlegs samstarfs til að efla eftirlit með útlendingum og tryggja að nýttar séu þær heimildir sem til staðar eru til þess að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Vinnuhópurinn hefur nú skilað Rögnu 16 tillögum til úrbóta. Hún hefur í framhaldinu falið samráðsnefnd lögreglu og Útlendingastofnunar um útlendingamál að fylgja tillögum vinnuhópsins eftir. Vinnuhópurinn leggur meðal annars til að lögregla nýti betur þá kosti sem felast í Schengen-samstarfinu. Aðgangur að gagnabönkum, fagstofnunum og aðild að alþjóðlegum samningum stuðli að sterkari stöðu lögreglu á Íslandi í baráttunni við skipulagða alþjóðlega brotastarfsemi. Hægt sé að gera mun betur til þess að vega upp ókosti Schengen samstarfsins og jafnframt að nýta betur þá kosti sem samstarfið býður upp á en gert er í dag. Vinnuhópurinn leggur ekki til breytingar á framkvæmd landamæraeftirlits en leggur hins vegar til að tekið verið upp nánara samstarf lögreglu og tollgæslu við svæðisbundið eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem byggt verður á grundvelli áhættugreiningarlíkans. Í vinnuhópnum sátu þau Sigríður Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem var jafnframt formaður, Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, Guðbrandur Guðbrandsson, lögreglufulltrúi hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra, Jóhann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins og Þorsteinn Gunnarsson, forstöðumaður hælissviðs Útlendingastofnunar.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Sjá meira