Innlent

Samfylkingin með opið prófkjör

Reykjanesbær.
Reykjanesbær. Mynd/GVA
Á félagsfundi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í gær var samþykkt að bjóða fram undir eigin nafni í komandi bæjarstjórnarkosningum og að halda opið prófkjör þar sem öllum kosningabærum bæjarbúum gefist kostur á að taka þátt. Samfylkingin, VG og Framsóknarflokkur buðu fram undir merkjum A-lista í kosningunum 2006. Framboðið fékk fjóra bæjarfulltrúa kjörna af ellefu.

„Fimm efstu sætin hljóta bindandi kosningu í prófkjörinu. Kynjaregla flokksins gildi fyrir fimm efstu sætin, þ.e. annað kynið hljóti ekki minna en 40% sæta og séu ekki fleiri en tvö sæti í röð skipuð einstaklingum af sama kyni," segir í tilkynningu.

Fimm manna nefnd var kjörin á fundinum til að setja nánari prófkjörsreglur í samráði við stjórn félagsins, skipuleggja prófkjörið, kalla eftir frambjóðendum og ákveða prófkjörsdag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×