Innlent

Hanna Birna efst - Júlíus Vífill annar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir er efst í prófkjöri sjálfstæðismanna eftir að fyrstu tölur hafa verið lesnar. Júlíus Vífill Ingvarsson er í öðru sæti, en fast á hæla honum fylgir Kjartan Magnússon.





Röð tíu efstu manna er þessi.

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Júlíus Vífill Ingvarsson

Kjartan Magnússon

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Gísli Marteinn Baldursson

Geir Sveinsson

Jórunn Frímannsdóttir

Áslaug Friðriksdóttir

Hildur Sverrisdóttir

Marta Guðjónsdóttir.

Alls voru 19175 manns á kjörskrá en um 7200 höfðu greitt atkvæði klukkan sex í kvöld. Það þýðir að kjörsókn hefur verið um 37%. Talin hafa verið um 3678 atkvæði.

Sé smellt á hlekkinn hér að neðan má sjá fyrstu tölur úr prófkjörinu.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×