Innlent

Rænt úr tjöldum tvisvar á ári

Afar fátítt er að stolið sé úr tjöldum í Laugardal. Hvert atvik er lögreglumál, segir framkvæmdastjórinn. Fréttablaðið/vilhelm
Afar fátítt er að stolið sé úr tjöldum í Laugardal. Hvert atvik er lögreglumál, segir framkvæmdastjórinn. Fréttablaðið/vilhelm

„Það er stolið úr tjöldum hjá okkur einu sinni til tvisvar á ári. Það er alltaf ömurlegt að lenda í þessu, bæði fyrir okkur og ekki síst fyrir þá sem verða fyrir þjófnaðinum,“ segir Markús Einarsson, framkvæmdastjóri Farfugla, sem reka tjaldsvæðið í Laugardal. Hann segir erfitt að verjast þessu. Þótt tjaldsvæðið sé afmarkað með girðingu eigi utanaðkomandi greiðan aðgang að því.

Fréttablaðið sagði í gær frá Ulf Hoffmann, þýskum höfundi ferðabóka fyrir reiðhjólafólk, sem varð fyrir því að steini var hent í tjald hans og verðmætum stolið úr því í Laugardalnum í sumar. Starfsfólk tjaldstæðisins fann nokkuð af þýfinu í nærliggjandi runnum. Þrátt fyrir það gagnrýndi hann ráðaleysi starfsfólksins.

Markús segir ekki rétt að starfsfólk tjaldsvæðisins hafi ekki haft upplýsingar um Hoffmann. Hann hafi afhent sér nafnspjald með heimilisfangi og símanúmerum og Markús talið það nægja fyndust þeir hlutir sem þýski ferðamaðurinn saknaði. Þá sé ætíð haft samband við lögreglu verði þjófnaðar vart.

„Við reynum að liðsinna fólki eins vel og við mögulega getum,“ segir Markús. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×