Rænt úr tjöldum tvisvar á ári 21. ágúst 2010 07:30 Afar fátítt er að stolið sé úr tjöldum í Laugardal. Hvert atvik er lögreglumál, segir framkvæmdastjórinn. Fréttablaðið/vilhelm „
Það er stolið úr tjöldum hjá okkur einu sinni til tvisvar á ári. Það er alltaf ömurlegt að lenda í þessu, bæði fyrir okkur og ekki síst fyrir þá sem verða fyrir þjófnaðinum,“ segir Markús Einarsson, framkvæmdastjóri Farfugla, sem reka tjaldsvæðið í Laugardal. Hann segir erfitt að verjast þessu. Þótt tjaldsvæðið sé afmarkað með girðingu eigi utanaðkomandi greiðan aðgang að því. Fréttablaðið sagði í gær frá Ulf Hoffmann, þýskum höfundi ferðabóka fyrir reiðhjólafólk, sem varð fyrir því að steini var hent í tjald hans og verðmætum stolið úr því í Laugardalnum í sumar. Starfsfólk tjaldstæðisins fann nokkuð af þýfinu í nærliggjandi runnum. Þrátt fyrir það gagnrýndi hann ráðaleysi starfsfólksins. Markús segir ekki rétt að starfsfólk tjaldsvæðisins hafi ekki haft upplýsingar um Hoffmann. Hann hafi afhent sér nafnspjald með heimilisfangi og símanúmerum og Markús talið það nægja fyndust þeir hlutir sem þýski ferðamaðurinn saknaði. Þá sé ætíð haft samband við lögreglu verði þjófnaðar vart. „Við reynum að liðsinna fólki eins vel og við mögulega getum,“ segir Markús. - jab
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Sjá meira