Innlent

Liggur á gjörgæslu eftir sprengingu á Siglufirði

Karlmaður á sjötugsaldri, sem slasaðist í sprengingu í heimahúsi á Siglufirði undir kvöld í gær, var fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur og á Slysadeild Landsspítalans, eftir skamma viðdvöl á sjúrkahúsinu á Akureyri.

Hann var lagður á gjörgæsludeild og dvelur þar enn. Ekki fengust nánari upplýsingar um líðan hans í morgun.

Sprengingin varð á neðri hæð í tvílyftu timburhúsi og samkvæmt frásögn á Sigló.is, var krafturinn svo mikill, að húsið gliðnaði að hluta og hlaðinn steinveggur hrundi. Eldur kviknaði en annar íbúi hússins náði að slökkva hann strax.

Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni, en rannsóknarlögreglumenn frá Akureyri munu kanna það í dag. Margir íbúar Siglufjarðar urðu varir við sprenginguna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×