Koma til móts við atvinnulaus ungmenni 23. júní 2010 05:30 Agnar Jón með hópi ungmenna Hins hússins fréttablaðið/vilhelm
Hitt húsið stendur fyrir þríliða sumardagskrá fyrir ungt fólk í júní og júlí með það að markmiði að virkja ungt fólk félagslega og þjálfa það í að setja sér markmið. „Þetta er spurning um að bregðast við ástandinu eins og það er í samfélaginu í dag,“ segir Agnar Jón Egilsson, leikstjóri og hópstjóri í Hinu húsinu. „Það eru allt að 1.500 manns á aldrinum 17 til 24 ára atvinnulausir í Reykjavík og það verður að koma til móts við þá.“ Í fyrsta lagi er boðið upp á hópastarf ungmenna fyrir ungmenni og segir Agnar ekkert þar vera ómögulegt: „Þau skipta sér í hópa eftir áhugasviðum. Ef þig langar í strandblak þá finnur þú einhvern með þér í það. Ef þig langar að prjóna undir tré þá er það líka eitthvað sem er hægt að gera,“ segir hann. Síðan eru námskeið sem haldin eru á vegum fagfólks. Þar má nefna heimildarmyndagerð, fatabreytingar og dulvísindanámskeið og eru þau öll ókeypis. Í þriðja lagi eru í boði námskeið sem Hitt húsið er með í sambandi við Vinnumálastofnun og þjálfar fólkið í að setja sér markmið og framfylgja þeim, sækja um vinnu og vera félagslega virk í samfélaginu. „Það sem er magnað við þetta er að það geta allir gert allt,“ segir Agnar. „Það þarf bara að koma sér af stað.“ - sv
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira