Innlent

Mótmælir umfjöllun um laun lækna

Frá Borgarspítalanum. Laun lækna eru að stórum hluta byggð á mikilli yfirvinnu.fréttablaðið/Heiða
Frá Borgarspítalanum. Laun lækna eru að stórum hluta byggð á mikilli yfirvinnu.fréttablaðið/Heiða

Steinn Jónsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, segir í grein í Fréttablaðinu í dag neikvæðar og villandi upplýsingar einkenna umræðu um laun lækna í fjölmiðlum undanfarið.

Til dæmis sé fullyrt að laun lækna hafi lækkað minna en laun annarra heilbrigðisstétta. Einnig hafi verið vakin athygli á því að laun lækna á landsbyggðinni hafi lækkað minnst. Skýringin sé hins vegar sú að stór hluti launa lækna byggist á yfirvinnu, og hún sé mest úti á landi. Þá gleymist að árið 2009 hafi læknar gefið eftir samningsbundna hækkun upp á 9,6 prósent.

Í grein í Læknablaðinu segir auk þess Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, Álfheiði Ingadóttur heilbrigðisráðherra hafa gefið í skyn að laun lækna séu almennt á bilinu 2-3 milljónir á mánuði. „Staðreyndin er hins vegar sú að laun lækna í 100% starfi hjá ríkinu eru í kringum ein milljón króna.“ Tíu prósent lækna hafi hins vegar tekjur hærri en 1,5 milljónir á mánuði og aðeins rúmur tugur lækna sé með tekjur yfir tveimur milljónum.

- gb /




Fleiri fréttir

Sjá meira


×