Vill íbúakosningar um ráðningu bæjarstjóra Hafnarfjarðar 23. júní 2010 16:07 Rafeindavirkinn Rúnar ætlar að safna undirskriftum gegn bæjarstjóra Hafnarfjarðar.
Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson hefur ákveðið að hefja undirskriftasöfnun bæjarbúa til þess að knýja á um íbúakosningu vegna ráðningar Lúðvíks Geirssonar, sem var ráðinn bæjarstjóri eftir að hafa fallið út úr bæjarstjórn. Hann sat í sjötta sæti lista Samfylkingarinnar en flokkurinn náði aðeins fimm mönnum inn. Lúðvík hefur hinsvegar verið bæjarstjóri í átta ár. „Við erum ekki opinberlega byrjaðir en þetta fer af stað um helgina," segir Rúnar sem starfar sem rafeindarvirki. Hann þarf undirskriftir 25 prósent bæjarbúa eða tæplega 4500 manns. Aðspurður hvort það sé yfirhöfuð hægt að kjósa um ráðningu bæjarstjórans svarar Rúnar: „Í reglum bæjarins segir að maður geti kosið um allar samþykktir bæjarins nema þær sem viðkoma fjárhag bæjarins og svo kosningar í nefndir og ráð. Það er ekkert sem segir að ekki séð hægt að kjósa um ráðningu bæjarstjórans." Rúnar segir mikinn hita í bæjarbúum vegna ráðningar Lúðvíks. Sjálfur telur Rúnar lýðræðið fótum troðið. „Maðurinn setur sig að veði í bæjarstjórnarkosningum á ekki að vera ráðinn faglegur bæjarstjóri," segir Rúnar. Spurður hvort hann sé á málum hjá flokkspólitískum andstæðingum Lúðvíks svarar Rúnar því til að hann sé bæði skráður í Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna. „Það er til þess að hafa áhrif á uppröðun lista í prófkjörum flokkanna," segir Rúnar sem hefur aldrei verið virkur í flokkspólitík að eigin sögn. Rúnar segir að undirskriftalistarnir muni hanga á bensínstöðvum og verslunum út um allan bæ. Þar getur fólk skráð nafn sitt og kennitölu deili þeir sömu skoðunum og Rúnar. „Fyrirkomulagið verður mjög svipað því sem gerðist í undirskriftasöfnuninni varðandi álverið," segir Rúnar en þegar hefur verið safnað nægilegum undirskriftum fyrir að kjósa aftur um stækkun álversins í Straumsvík. Það var í fyrsta skiptið sem íbúalýðræðið var nýtt með slíkum hætti í Hafnarfirði. Rúnar hefur þrjá mánuði til þess að safna undirskriftunum. Þess má geta að þegar ný bæjarstjórn kom saman 14. júní síðastliðinn þá mættu fjölmargir Hafnfirðingar á fundinn og mótmæltu ráðningu Lúðvíks.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira