Innlent

Kýldu mann og brutu tennur

Mynd/Pjetur

Lögreglustjórinn á Húsavík hefur ákært tvo menn fyrir grófa líkamsárás. Þeim er gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst 2009, á Þórshöfn, slegið mann hnefahöggum og sparkað í hann liggjandi. Tennur brotnuðu í fórnarlambinu, það fékk glóðarauga og áverka á hnakka.

Gerð er krafa um að árásarmennirnir rúmlega 450 þúsund í skaðabætur. Mennirnir neituðu sök við þingfestingu og fer aðalmeðferð fram síðar.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×