Innlent

Íslenskar löggur fræðast um smyglleiðir og framleiðslu fíkniefna

Anton Kohut, fulltrúi frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, og Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH.
Anton Kohut, fulltrúi frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, og Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH.
Anton Kohut fulltrúi frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, DEA, heimsótti Ísland á dögunum og hélt fræðsluerindi í Lögregluskólanum. Hann fór ítarlega yfir stöðu og þróun mála í mjög áhugaverðu erindi og fjallaði meðal annars um framleiðslu kókaíns og einnig helstu smyglleiðir inn í Evrópu.

Anton sagði að fíkniefni frá Suður-Ameríku færu til dæmis gjarnan um Vestur-Afríku á leið til Evrópu. Misjafnlega gengur að sporna við þessu og kemur margt til en sumstaðar er mikil spilling og þar eru bæði embættis- og stjórnmálamönnum mútað. Annars staðar er það skortur á eftirliti við landamæri sem gerir lögreglunni erfitt fyrir. Eystrasaltslöndin voru nefnd í því sambandi en Eistland, Lettland og Litháen eiga Schengen-landamæri að Hvíta-Rússlandi og Rússlandi. Og frá þessum stöðum berast fíkniefni til annarra Evrópulanda, þar með talið Ísland.

Bæði lögreglumenn og tollverðir sóttu erindið en tilgangurinn með fræðslu sem þessari er að auka færni og þekkingu þeirra sem berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi en þar koma fíkniefni mjög við sögu. Það voru lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Lögregluskólinn sem stóðu að þessu erindi í sameiningu en þeim sem vinna við málaflokkinn var boðið sérstaklega að koma og hlýða á fulltrúa bandarísku fíkniefnalögreglunnar. Anton Kohut hefur komið alloft hingað til lands og er sérstakur tengiliður við íslensku lögregluna í þessum málaflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×