Arnar Már borinn út í kyrrþey Valur Grettisson skrifar 11. nóvember 2010 15:30 Arnar Már flutti eldræðu inn í Landsbankanum.
Arnar Már Þórisson, verktaki, var borinn út í gærmorgun en sjálfur segir hann í orðsendingu til fjölmiðla að hann hafi verið borinn út í kyrrþey. Arnar átti heimili að Laufásvegi 65 en Heimavarnarliið hafði áður varnað sýslumanni að fylgja útburðinum eftir. Í orðsendingunni sem Arnar Már sendi frá sér segir að sýslumaður ásamt lögmönnum frá Pactas hafi farið að heimili hans í gærmorgun og skipt um lása á heimilinu. Sjálfur segir Arnar Már í orðsendingu sinni: „Til stóð að útburðurinn færi fram 02.11.2010 og fékk ég tilkynningu þess efnis, ég mótmælti þeim útburði og fékk Heimavarnarliðið til þess að aðstoða mig í þeim efnum. Sýslumaður lét ekki sjá sig á tilsettum degi, heldur framkvæmdi útburðinn rúmri viku seinna, ótilkynnt og þar sem ég var við vinnu gat ég ekki varið mig á neinn hátt." Arnar hefur vakið þjóðarathygli undanfarið vegna baráttu sinnar við að halda heimili sínu. Meðal annars fór hann inn í Landsbankann þar sem hann las upp yfirlýsingu. Myndband þess eðlis fór eins og eldur í sinu um veraldarvefinn. Heimavarnarliðið hefur stutt hann í baráttunni. Meðal annars biðu meðlimir varnarliðsins fyrir utan heimili Arnars þegar það átti að bera hann út fyrr í mánuðinum. Í þar síðustu viku sagði DV frá því að Arnar Már væri óeðlilega skuldsettur. Meðal annars var húsið hans í eigu félags sem skuldaði hundruð milljóna. „Ég er ekki að biðja um að allar skuldir mínar verði felldar niður. Ég er ábyrgur gjörða minna og fór kannski bratt í því ástandi sem var þá. Ég tek ábyrgð á því. En ef bankinn skiptir um kennitölu á einni nóttu þá hljóta þeir að geta gert við mig leigusamning," sagði Arnar Már í viðtali við Vísi í síðustu viku. „Ég var sjálfstæður verktaki, ekki svindlari," bætti Arnar Már við og áréttaði að hann hefði ekki keypt sér hlutabréf eða farið í einhvern forstjóraleik, eins og hann orðar það. „Ég fór á hverjum degi í vinnugallann og út að vinna."
Tengdar fréttir Kexinu lokað: Þetta er bara eins og golfklúbbur „Þetta er bara klúbbur, eins og golfklúbbur,“ sagði Arnar Már Þórisson, einn af eigendum klúbbsins Kex á Barónstíg en lögreglan lokaði staðnum á þriðjudagskvöldinu. 5. nóvember 2010 10:32 Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira
Kexinu lokað: Þetta er bara eins og golfklúbbur „Þetta er bara klúbbur, eins og golfklúbbur,“ sagði Arnar Már Þórisson, einn af eigendum klúbbsins Kex á Barónstíg en lögreglan lokaði staðnum á þriðjudagskvöldinu. 5. nóvember 2010 10:32