Stöðva enn nýsmíði Hrafns í Laugarnesi 17. mars 2010 01:00 Nýtt skýli í flæðarmálinu Hrafn Gunnlaugsson heldur uppteknum hætti og framkvæmir bæði innan lóðar sinnar og utan án þess að sækja um leyfi hjá borgaryfirvöldum. Eitt nýjasta mannvirkið stendur utan lóðar kvikmyndaleikstjórans í fjörunni í Laugarnesi.Fréttablaðið/GVA
Framkvæmdir við ný mannvirki á og við lóð Hrafns Gunnlaugssonar, kvikmyndaleikstjóra í Laugarnesi, hafa verið stöðvaðar. Starfsmaður byggingarfulltrúans í Reykjavík fór í vettvangskönnun í Laugarnesið um miðjan febrúar eftir að athugasemd barst embættinu um að hús hefði verið steypt upp í fjöruborðinu neðan við hús Hrafns í Laugarnestanga 65. „Kom í ljós að framkvæmdir eru í gangi á staðnum sem ekki eru leyfi fyrir, en búið er að byggja skúr eða skýli niðri við flæðarmál. Einnig eru framkvæmdir í gangi við annað hús út við lóðamörk, en búið er að slá upp fyrir veggjum og steypa að hluta veggi og verið er að undirbúa steypu á gólfi,“ segir í bréfi sem byggingarfulltrúi skrifaði Hrafni fyrr í þessum mánuði. Í bréfinu til Hrafns kemur fram að ekkert byggingarleyfi hafi verið gefið út fyrir fyrrnefndum framkvæmdum og að engir uppdrættir hefðu borist byggingarfulltrúa. Honum var því tilkynnt um að „allar framkvæmdirnar, hverju nafni sem þær nefnast, hafi verið stöðvaðar“. Bréfið til Hrafns var lagt fyrir síðasta fund skipulagsráðs Reykjavíkur sem staðfesti ákvörðun byggingarfulltrúans um stöðvun framkvæmda. Hrafn hefur nú frest til 18. mars til að gefa skýringar á nýsmíðinni í Laugarnesi. Það er síðan í höndum skipulagsráðs að ákveða framhald málsins, til dæmis hvort mannvirkin verði fjarlægð á kostnað Hrafns. Reyndar hefur Hrafn áður lagt út í ýmsar ósamþykktar framkvæmdir, bæði innan sinnar eigin lóðar og utan, án þess að hafa þurft að sæta því að þær væru rifnar. „Lóðafrágangurinn hjá honum er ekki í samræmi við samþykkta uppdrætti. En það er búið að vera mikið annríki hjá öllum sem eiga að vera að fylgjast með þessu, embætti byggingarfulltrúa og fleirum,“ útskýrir Magnús Sædal byggingarfulltrúi. Ekki náðist í Hrafn Gunnlaugsson í gær. gar@frettabladid.is Óræð bygging Framkvæmdir við þetta sérstaka mannvirki voru stöðvaðar í febrúar.Fréttablaðið/GVA
Mest lesið Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Innlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Erlent Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Innlent Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Innlent Fleiri fréttir „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent