Kostnaður Glitnis meiri en Kaupþings 16. febrúar 2010 05:15 Á blaðamannafundi Eggert Þór Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis og Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings á fundi í fyrrasumar. Glitnir og Kaupþing hafa upplýst um kostnað við kaup á sérfræðiþjónustu, en Landsbankinn neitar að veita sömu upplýsingar. Fréttablaðið/GVA
Aðkeypt sérfræðiþjónusta að meðtöldum virðisaukaskatti þegar við á nam 3,4 milljörðum króna árið 2009 hjá skilanefnd og slitastjórn Glitnis. „Þar af námu greiðslur til erlendra aðila 2,6 milljörðum króna en 0,7 milljörðum króna til innlendra aðila," segir í svari við fyrirspurn blaðsins um kostnað skilanefnda bankanna vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Tekið er fram í svarinu að með í tölum um aðkeypta þjónustu innlendra aðila séu greiðslur til þeirra sem starfi í skilanefnd og slitastjórn Glitnis. Upphæðirnar eru sambærilegar við þær sem skilanefnd Kaupþings hefur látið frá sér fara, en Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að þar á bæ hefði ráðgjafarkostnaður numið 3,2 milljörðum króna í fyrra, 2,3 milljarðar fóru til fyrirtækja utan landsteinanna og 894 milljónir króna innanlands. Í svari skilanefndar Glitnis er tekið fram að gera megi ráð fyrir að kostnaður við aðkeypta sérfræðiaðstoð fari lækkandi á næstu misserum. „Eðli málsins samkvæmt er slíkur kostnaður mestur fyrstu tvö til þrjú árin í slitaferlinu," segir þar. Þá segir í svarinu að mikilvægt sé að hafa í huga að kostnaður við rekstur bús Glitnis greiðist af kröfuhöfum, sem séu að stærstum hluta erlendir aðilar eða um 80 prósent. „Fulltrúar kröfuhafa fylgjast náið með starfsemi Glitnis og eru þeir reglulega upplýstir ítarlega um framvindu mála. Til að hámarka virði þeirra eigna sem eru í búi Glitnis hafa fulltrúar kröfuhafa lagt ríka áherslu á að leitað sé ráðgjafar og aðstoðar hjá færustu sérfræðingum á hverju sviði. Vegna umfangs búsins og flókinna verkefna sem við er að fást hefur eðli málsins samkvæmt reynst nauðsynlegt að leita til alþjóðlegra sérfræðinga í ríkum mæli." Skilanefndir Glitnis og Kaupþings hafa upplýst um kostnað við kaup á sérfræðiþjónustu, en Landsbankinn neitar að veita sömu upplýsingar. - óká /
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjá meira