Innlent

Eldsneytishækkun þrátt fyrir styrkari krónu og lækkanir á heimsmarkaði

MYND/GVA

Olíufélögin hækkuðu bensínlítrann um fjórar krónur í gær, þrátt fyrir fregnir af því að krónan væri heldur að styrkjast í sessi gagnvart dollar og olía væri heldur að lækka á heimsmarkaði. Bensínverðið hefur hækkað um níu krónur á fáum vikum, en skammt er frá því að verðið hækkaði um fimmkall.

Sem kunnug er, þá eru olíuviðskiptin gerð í Bandaríkjadollurum. Bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu á stóru bensínstöðvunum er nú kominn upp í rúmlega 208 krónur. Þá er dísillítrinn kominn upp í tæpar 203 krónur, en heldur lægra verð er að vanda á ómönnuðu stöðvunum, allt niður í 13 krónum ódýrara í morgun.

Miðað við þær fosendur, sem olíuféllögin hafa gefið sér við verðlagningu, þá virðast þau hafa haldið óbreyttu verði á kostnað álagningar um nokkurt skeið, þannig að hækkunin núna endurspeglar ekki hækkun á álagningu.

Samkvæmt upplýsingum FÍB er hún nú álíka og hún var áður en þau hækkauðu álagningu árið 2008. Þá má benda á að bensínlítrinn myndi kosta 179 krónur núna, ef aukin skattlanging hins opinbera á bensín um áramótin upp á 25 krónur á lítra, hefði ekki komið til.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×