Bretar logandi hræddir við Ofurketti 20. september 2009 19:50 Ofurkettirnir eru dálítið sætir. En þeir minna frekar á blettatígur en kött.
Bretar eru nokkuð áhyggjufullir vegna nýrrar kattategundar sem er að festa rætur þar í landi en um er að ræða ofurkött sem er ræktaður úr kattardýri sem svipar til blettatígurs. Kattartegundin sem um ræðir heitir Savannah-kötturinn sem mætti þýða sem hitabeltiskötturinn. Kattardýrið er blanda af heimilisketti og afrískum villiketti. Ofurkötturinn er rúmlega tvöfalt stærri en venjulegur köttur og getur að auki hlaupið áttatíu kílómetra á klukkustund. Talið er að um 300 ofurkettir séu í Bretlandi en gagnrýnendur segja að kettirnir bjóði hættunni heim. Bæði geta þeir valdið börnum gríðarlegum skaða og svo er aldrei að vita hvert geðslag þeirra er. Menn óttast einnig að ofurkettir blandist öðrum villiköttum í Bretlandi. Þá gæti orðið til stórhættulegt ofurkattakyn sem reikar villt um í borgum og bæjum. Menn fóru fyrst að rækta ofurköttinn árið 1980 en hann var síðan bannaður í Bandaríkjunum og sumstaðar í Ástralíu. Ætli maður að ala upp Hitabeltisköttinn þá þarf leyfi frá yfirvöldum. Meðal annars má ekki hleypa kettinum út án þess að hafa hann í ól eða búri. Þess má geta að Hitabeltiskötturinn kostar 6000 pund. Á núverandi gengi eru það um 1,2 milljónir króna. Formaður ofurkattaklúbbsins, Donna Peynado, viðurkennir að dýrin séu dálítið stór og sterk og að veiðieðli dýranna sé sterkt. En eina öryggisreglan er sú að skilja ekki ofurköttinn einan eftir með barni undir fimm ára aldri.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira