Davíð vildi knésetja Styrmi 20. apríl 2009 12:00 Davíð Oddsson
Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, vildi að Landsbankinn knésetti Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, þegar Viðeyjarstjórnin var í fjörbrotum. Þetta fullyrðir Sverrir Hermannsson, þáverandi bankastjóri Landbankans. Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, opnaði í gær heimasíðu, þar sem eru skrif hans langt aftur í tímann. Hann segir í einni færslu frá því að þegar fjara fór undan samtarfi Davíðs Oddssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar í stjórn landsins, hafi Kjartan Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, gengið á sinn fund. Þetta hefur verið um eða fyrir árið 1995. Sverrir fullyrðir að Kjartan hafi sagst vera í umboði Davíðs Oddssonar, þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann hafi ennfremur ekki viljað tala við Sverri sem bankastjóra, heldur sem fyrrverandi þingmann og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, og æviráðinn trúnaðarmann, eins og Sverrir orðar það. Sverrir segir að erindi Kjartans hafi verið að koma Styrmi Gunnarssyni á kné. Davíð hafi komist að skuldastöðu Styrmis við bankann og vilji að Landsbankinn segi upp öllum lánsviðskiptum við hann og gangi að honum. "Sem auðvitað þýddi gjaldþrot," segir Sverrir. Menn geti leitt getum að til hvers leitt hefði fyrir ritstjórann. Sverrir segir að málið hafi verið reifað sem innanflokksmál. Því gildi engin bankaleynd.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Fleiri fréttir Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Sjá meira