Vilja bæta öryrkjum skerðingu í nýju kerfi 25. apríl 2009 04:15 Nefnd leggur til að komið verði á fót kerfi barnatrygginga þannig að öllum barnafjölskyldum verði tryggð ákveðin fjárhæð til lágmarksframfærslu. Barnatryggingarnar yrðu tekjutengdar og myndu skerðast hjá fólki með tekjur yfir meðalráðstöfunartekjum. Hagur atvinnulausra og láglaunafólks myndi batna en öryrkjar yrðu fyrir skerðingu. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Nefnd um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerð mælir með því nýju kerfi barnatrygginga sem komi í stað barnabóta, mæðra- og feðralauna, barnalífeyris og viðbótar við atvinnuleysisbætur vegna barna. Árlegur kostnaður er talinn 14 milljarðar og á nýja kerfið ekki að auka útgjöld ríkisins. Miðað er við að öllum barnafjölskyldum verði tryggð ákveðin fjárhæð til lágmarksframfærslu. Barnatryggingar yrðu tekjutengdar og myndu skerðast hjá fólki með tekjur umfram meðalráðstöfunartekjur. Hagur tekjulágra hópa, sérstaklega atvinnulausra og láglaunafólks, myndi batna og kerfið nýtast barnmörgum fjölskyldum. Barnatryggingarnar myndu tryggja öllum foreldrum upp að ákveðnum lágtekjumörkum 40 þúsund króna greiðslu fyrir hvert barn. Skerðingarmörkin yrðu 146 þúsund krónur hjá einstæðum foreldrum og 252 þúsund hjá hjónum miðað við tekjur fyrir skatt. Eini hópurinn sem yrði fyrir skerðingu í þessu nýja kerfi er öryrkjar. Björk Vilhelmsdóttir, einn nefndarmanna, segir að öryrki fengi 42.200 fyrir eitt barn samkvæmt gamla kerfinu en 35.851 samkvæmt tillögunum. „Öryrki væri að lækka um 6.000 krónur á mánuði. Við vitum að þetta er hópur sem er ekki vel settur þannig að við leggjum til að þessum hópi verði bætt þetta sérstaklega með hækkun sjálfs örorkulífeyrisins,“ segir Björk. Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ, er ekki sátt við að öryrkjar verði fyrir skerðingu. Hún telur að ganga verði frá því fyrirfram með hvaða hætti og hvenær þeim verði bætt skerðingin „Nefnd er að endurskoða almannatryggingakerfið og við teljum mjög eðlilegt að hún skoði þennan þátt. Öryrkjar eru eini viðkvæmi hópurinn sem fær einhverja lækkun samkvæmt þessum tillögum og það verður bara að bæta þeim það upp,“ segir Björk Vilhelmsdóttir. Í tillögum nefndarinnar er einnig gert ráð fyrir að dómurum verði veitt heimild til að dæma foreldrum sameiginlega forsjá barns gegn vilja annars foreldrisins. Þá verði maki í nýrri sambúð að sækja um forsjá í stað þess að fá hana sjálfkrafa, foreldrar beri almennt kostnað af umgengni og að forsjárlausir foreldrar hafi sama aðgang að skriflegum upplýsingum um barn sitt og forsjárforeldrar. ghs@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira