Innlent

Moskvufarar lentir - slökkviliðið sprautaði vatni yfir flugvélina

Evróvisjón-fararnir lentu um þrjú leitið. Þegar flugvélin var lent ók slökkviliðið að vélinni og sprautaði vatni yfir hana þeim til heiðurs.

Það var einnig gert þegar landsliðið í handbolta vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking á síðasta ári.



Jóhanna Guðrún í viðtali. Þarna hefur hún ekki sofið í um sólarhring.Mynd/Hilmar Bragi vf.is

Þegar inn í flugstöðina var komið tóku Páll Magnússon útvarpsstjóri, Þórhallur Gunnarsson dagskrástjóri og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra á móti ferðalöngunum sem hafa ekkert hvílst síðan í gær.

Katrín færði þeim blóm og las svo upp kveðju frá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.



Jóhanna þreytt en sæl ásamt föruneyti. Mynd/Hilmar Bragi, vf.is.

Gríðarleg hamingja einkenndi sigurvegarana. Jóhanna Guðrún og Óskar Páll Sveinsson, lagahöfundur, ljóstruðu upp að þeim hefði verið boðin atvinnutækifæri sem þeim leist vel á.

Athöfnin var stutt og laggóð. Nú er haldið niður í Ráðhús þar sem Borgarstjóri mun halda móttöku fyrir þau. Svo verður haldin sigurhátíð á Austurvelli klukkan 17:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×