Innlent

Kviknaði í gróðri í Heiðmörk

Eldur kviknaði í gróðri í Heiðmörk undir kvöld í gær og sviðnuðu þar 500 til 600 fermetrar lands. Eldurinn var við svonefnda Maríuhella og var að breiða úr sér þegar slökkviliðið kom á vettvang, en því tókst að hefta útbreiðsluna og slökkva í sverðinum. Tré og runnar á svæðinu eyðilögðust. Talið er að kviknað hafi í út fá einnota kolagrilli, sem hafði verið skilið eftir, án þess að slökkva í kolunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×