Enski boltinn

Blackburn vann góðan útisigur gegn Bolton

Ómar Þorgeirsson skrifar
David Dunne fangar fyrsta marki sínu með Franco Di Santo.
David Dunne fangar fyrsta marki sínu með Franco Di Santo. Nordic photos/AFP

Blackburn gerði góða ferð á Reebok-leikvanginn og vann 0-2 sigur gegn Bolton í fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni.

David Dunne kom gestunum í Blackburn yfir með marki eftir rúmlega hálftíma leik og staðan var enn 0-1 í hálfleik.

Blackburn bættu svo við öðru markinu með hjálp Bolton reyndar þegar um stundarfjórðungur lifði leiks.

Sam Ricketts skoraði þá afar klaufalegt sjálfsmark þegar hann ætlað að skalla aftur á Jussi Jaaskalainen í markinu en finnski markvörðurinn stóð það framarlega að boltinn fór yfir hann og skoppaði í markið.

Grétar Rafn Steinsson sat allan leikinn á varamannabekknum en spurning hvort að mistök Ricketts opni leið fyrir Siglfirðinginn inn í byrjunarliðið á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×