Innlent

Vill sjá atvinnulíf og launþega leggja niður störf

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólk.
Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólk.
„Stjórnvöld bera mikla ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þessari þjóð," segir Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku. Ólafi er nóg boðið eftir stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og vill að atvinnulífið og launþegar snúi bökum saman.

Ólafur leggur til að aðilar úr atvinnulífinu og launþegar leggi niður störf til að krefjast aðgerða. Fyrst styttri stopp þar til stóra stoppið skellur á ef ekkert verður að gert. „Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á ríkisstjórn sem gerir ekki handtak. Atvinnulífið og launþegar eiga að þrýsta á stjórnvöld með beinum aðgerðum þangað til menn vakna," segir Ólafur sem tekur þó fram að hann vill efna til friðsamlegra mótmæla.

„Vissulega hafa Íslendingar lent í brotsjó. En að það skulu vera hér langhæstu vextir í evrópu er bara til þess gert að kyrkja þá sem enga ábyrgð bera á hruninu," segir Ólafur. Hann segir að Mjólka standi þó vel miðað við marga aðra. „Við finnum hinsvegar alveg fyrir þessari gífurlegu óánægju í atvinnulífinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×