Fyrning þýðir gjaldþrot 5. júní 2009 03:30 Þingmaður og fiskverkakona Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sótti þingið og ræðir hér við Elínbjörgu Magnúsdóttur fiskverkakonu sem hélt kröftugt erindi. Hún varaði mjög við fyrningarleið og lagði áherslu á mikilvægi stöðugleika til að vernda störf síns fólks.fréttablaðið/Óskar
Formaður sjávarútvegsnefndar segir ekki koma til greina að fara fyrningarleið í sjávarútvegi ef það sannast að hún hafi neikvæð áhrif á byggðirnar í landinu. Hann segir að sátt verði að ríkja um málið svo það fái framgang. Þetta var meðal þess sem kom fram á málþingi um auðlindastýringu og fyrningarleið ríkisstjórnarinnar sem haldið var í Vestmannaeyjum í gær. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og formaður sjávarútvegsnefndar, sat málþingið í fjarveru flokksbróður síns, Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra. Hann sagði að vandi sjávarútvegs væri stærri og meiri en hugmyndin um innköllun kvóta og endurúthlutun. „Þar á ég við framsalið, skuldsetningu greinarinnar og Evrópusambandsaðild.“ Hann sagði jafnframt að fyrningarleið yrði ekki farin ef sýnt yrði fram á það að leiðin gengi gegn því markmiði að efla atvinnu og byggð í landinu. „Ég mun ekki fara leið sem kollvarpar sjávarútvegi.“ Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte, greindi frá útreikningum sínum um þýðingu fyrningarleiðarinnar á fyrirtæki í rekstri. Niðurstaða hans er að vegna skuldsetningar eigi þau erfitt með að keppa um heimildir sem fyrnast og verða endurseldar. „Ef fyrirtækin ná ekki að leigja til sín allt sem verður fyrnt frá þeim, þá munu þau fara í greiðsluþrot á örfáum árum. Kostnaðurinn við að umbylta kerfinu með þessum hætti er sá að skuldir þessara fyrirtækja falla á bankana og ríkið þarf að endurfjármagna bankana upp á nýtt. Mér sýnist að ávinningur ríkisins verði óverulegur og því sé þessi leið allt of dýr til að umbylta sjávarútvegi með þessum hætti“, segir Þorvarður. Þórólfur Matthíasson, prófessor við Háskóla Íslands, sagði fyrningu draga úr yfirfjárbindingu í sjávarútvegi og minnki því vaxtagreiðslur fyrirtækja. „Í staðinn fyrir að greiða útlendingum vexti þá renna þessir fjármunir í ríkissjóð og minnka þar með skattheimtuþörf hins opinbera.“ Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingar, sagði málflutning á þinginu einhliða gegn fyrningarleiðinni og gagnrýndi val framsögumanna. Hún sagði málþingið „messu“ gegn fyrningu sem næði ekki til sjónarmiða og hagsmuna nema hluta þjóðarinnar. Hún minnti á af hverju leiðin væri íhuguð; flótti útgerðarmanna með milljarða út úr greininni og byggðir í sárum þess vegna. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira