Innlent

Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Utanríkisráðuneytið.
Utanríkisráðuneytið. Mynd/GVA
Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.

Fréttir af málinu hafa verið óljósar en fullyrt var í fréttum Ríkisútvarpsins í gær og Fréttablaðinu í dag að sendiherrann hafi verið kallaður heim vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta, til landsins. Sjálfur neitaði sendiherrann því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki náðst í Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, vegna málsins í morgun en hann er staddur á Möltu.


Tengdar fréttir

Sendiherra Kína ekki á förum

Sendiherra Kína, Zhang Keyuan, segir að það sé algerlega fráleitt að hann hafi verið kallaður heim til Kína vegna heimsóknar Dalai Lama til Íslands.

Harkaleg viðbrögð

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið.

Helstu ráðamenn fjarri Dalai Lama

Sendiherra Kína á Íslandi lýsti í gær óánægju ríkis­stjórnar sinnar með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta. Fjórir ráðherrar og rúmlega tíu alþingismenn hittu Dalai Lama í gær og fyrradag.

Ráðamenn hissa kalli Kínverjar sendiherrann heim

„Ég er hissa á því ef Kínverjar slíti eða dragi úr stjórnmálaasmskiptum vegna heimsóknar Dalai Lama," segir Steingrímur J. Sigfússon í viðtali við RÚV vegna fréttar Ríkisútvarpsins af því að Kínverjar hafi kallað kínverska sendiherrann heim vegna málsins.

Sendiherrann kallaður heim

Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár.

Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama

Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×