Karlmaður um þrítugt á gjörgæslu með svínaflensu 13. október 2009 12:04 Mynd úr safni
Karlmaður um þrítugt liggur á gjörgæsludeild Landspítalans vegna H1N1 inflúensunnar. Bólusetning forgangshópa hefst innan fárra daga. Samkvæmt upplýsingum frá Þórólfi Guðnasyni, yfirlækni á sóttvarnasviði hjá Landlæknisembættinu, liggja 13 manns á sjúkrahúsi vegna H1N1 inflúensu - svonefndrar svínaflensu - þar af þrír á gjörgæslu. Um er að ræða fólk á miðjum aldri, en einn maður á gjörgæslu mun vera um þrítugt. Inflúensan getur valdið miklum bólgum í lungum og þeir sjúklingar sem hefur þurft að leggja á gjörgæslu hafa þurft á öndunaraðstoð að halda. Nær allir sjúklingarnir eru með undirliggjandi sjúkdóma sem veikja ónæmiskerfið. Þórólfur segir heilbrigðisyfirvöld eðlilega hafa áhyggjur, reynsla annarra þjóða sýni að ekki þurfi marga mjög inflúensuveika einstaklinga til að hreinlega lama gjörgæsludeildir. Af þeim sökum liggi á að hefja bólusetningu. Eins og fram hefur komið berast fyrstu 15 þúsund skammtarnir af bóluefni til landsins á fimmtudag og hefst bólusetning forgangshópa í framhaldi af því. Fregnir berast af því að mikið sé um forföll nemenda og kennara í skólum landsins. Þórólfur segir það vera líkt og spár um útbreiðslu gerðu ráð fyrir. Það væri hins vegar enginn tilgangur í að loka skólum eða mannmörgum samkomustöðum nú til að hefta útbreiðslu flensunnar, því hún sé komin það mikið á skrið.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira