Umdeildur sálfræðihrollur 10. september 2009 03:00 antichrist Charlotte Gainsburg fer með aðalhlutverkið í sálfræðihrollvekjunni Antichrist eftir Lars von Trier.
Sálfræðihrollvekjan Antichrist eftir Lars von Trier verður frumsýnd annað kvöld. Hún er ein fimm mynda sem hafa verið tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og sem Græna ljósið sýnir um helgina. Antichrist fjallar um hjón sem lenda í miklum erfiðleikum og konan fær ofsaleg kvíðaköst. Með það að markmiði að græða brostin hjörtu og lagfæra hjónabandið fara þau til afskekkts bústaðar sem þau eiga úti í skógi. Dvölin verður undarlegri og hryllilegri en þau gætu nokkru sinni hafa ímyndað sér þegar náttúran tekur völdin og allt fer á versta veg. Atburðirnir reyna verulega á samband þeirra og þau neyðast til að takast á við sig sjálf og ótta sinn í leiðinni. Antichrist var kynnt á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og vakti hún skelfingu hjá áhorfendum og varð umtalaðasta myndin á hátíðinni. Sumir kölluðu hana meistaraverk á meðan aðrir gagnrýndu hana fyrir að vera meðvitað ögrandi og að hún gengi allt of langt í blöndu sinni af hryllingi og erótík. Kvikmyndin hlaut ein verðlaun, Charlotte Gainsbourg var valin besta leikkonan. Með hlutverk eiginmannsins fer Willem Dafoe sem hefur áður leikið fyrir Trier í myndinni Manderlay. Leikstjórinn Lars von Trier er einn fremsti kvikmyndagerðarmaður Dana. Á ferilsskrá hans eru myndir á borð við Breaking the Waves, Idioterne, Dancer in the Dark og nú síðast Direktøren for det hele með Friðrik Þór Friðriksson og Benedikt Erlingsson á meðal leikara. Myndir hans vekja oftar en ekki mikið umtal og er Antichrist þar engin undantekning. Auk Antichrist verða sýndar í Háskólabíói myndirnar Norður eftir Norðmanninn Rune Denstad Langlo, Sána eftir AJ Annilla frá Finnlandi og Queen Raquela eftir Ólaf Jóhannesson og Ljósár eftir Svíann Mikael Kristersson, sem verður viðstaddur sýningu myndarinnar kl. 18 á laugardaginn. Ein þessara fimm mynda hlýtur síðan Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs sem verða veitt í sjötta sinn 21. október. Fimm mynda afsláttarpassar eru fáanlegir á 3.000 krónur. Allar myndirnar eru með enskum texta, nema Antichrist sem af einhverjum ástæðum verður með frönskum texta. Hún fer síðan í almennar sýningar 28. september.
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira