Innlent

Segir fjölmiðla hafa lagt flokkinn nánast í einelti

Ásta Möller
Ásta Möller

Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur átt sæti á Alþingi síðustu tíu árin dettur nú af þingi. Hún segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart miðað við skoðanakannanir fyrir kosningar. Hún segist ekkert hafa ákveðið hvað taki nú við en margt hafi spilað inn í slæmt gengi flokksins í kosningunum. Ásta segir fjölmiðla ekki hafa hjálpað flokknum og hamast hafi verið á Guðlaugi Þór alla páskanna á meðan þagnarhjúpur hafi verið myndaður um Ingibjörgu Sólrúnu varðandi styrkjamálin.

„Mín viðbrögð eru svosem engin, maður var búin að sjá þetta fyrir," segir Ásta sem hefur átt sæti á Alþingi síðan 1999. Hún viðurkennir vel að mótvindurinn hafi verið mikill fyrir flokkinn í kosningabaráttunni og segir margt hafa spilað þar inn í.

„Fjölmiðlar voru til dæmis ekki beint að hjálpa okkur. Það var í raun makalaust hvernig fjölmiðlar lögðu flokkinn nánast í einelti og um leið og eitthvað kom upp sem snéri að öðrum flokkum þá var það kæft niður," segir Ásta og nefnir þar sérstaklega umræðuna um styrkjamálin svokölluðu.

„Það var hamast á Guðlaugi Þór alla páskahelgina. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir síðan sjálf á annan í páskum að hún hafi haft samband við ýmis fyrirtæki og þá var bara myndaður þagnarhjúpur um það mál, mér fannst það sérstakt," segir Ásta.

Hún vill þó ekki skella allri skuldinni á fjölmiðla en segir þessa umræðu vissulega haft áhrif á niðurstöðuna.

„Það var hinsvegar löngu ljóst að við færum illa út úr þessum kosningum. Ég velti hinsvegar fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn tók þessa opinskáu umræðu innan sinna raða einn flokka og benti fingri á sína eigin liðsmenn á meðan aðrir flokkar gerðu það ekki. Í stað þess að flokkurinn fengi kredit fyrir það þá er spurning hvort honum hafi verið refsað enn frekar."

Ásta segist ekkert hafa ákveðið hvað hún taki sér nú fyrir hendur, hún sé með góða menntun og sé því ekki á flæðiskeri stödd.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×