Uppsagnir og strætisvagnar seldir verði farið í útboð 7. nóvember 2009 16:24 Dagur B. Eggertsson. „
Það er ekki hægt að afgreiða svona tillögur til frekari vinnslu og um leið segja engar kollsteypur fyrirhugaðar," segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, sem gefur lítið fyrir yfirlýsingar stjórnarformanns Strætós bs. um tillögur sem fela sér að rekstur á öllum strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verði boðinn út til einkaaðila. Dagur segir að verði farið í útboð þýði það að strætisvagnarnir verði seldir og auk þess verði öllum vagnstjórum sagt upp. Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætós bs, sagði í samtali við fréttastofu í dag að ekki standi til að ráðast í róttækar breytingar á rekstri byggðarsamlagsins. Tillögur Par-x viðskiptaráðgjafar IBM sem voru lagðar fram í vikunni séu einungis tillögur. Engin áform séu um að skerða þjónustuna eða segja starfsfólki upp. „Mér finnst stjórnarformaður Strætó skauta býsna létt fram hjá því að á aðalfundi Sambands samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í gær og ársfundi Strætó voru þessar tillögur Par-x lagðar fram um það að Strætó myndi umbreytast í fyrirtæki sem sæi um útboð á leiðum í stað þess reka vagnanna sjálft," segir Dagur og bætir við að um stórmál sé að ræða. Málið snúi að þjónustu við almenning og starfsöryggi starfsmanna fyrirtækisins. „Það á ekki að umgangast það að léttúð. Síst á tímum eins og við lifum núna." Dagur segir á fundi Sambands samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í gær hafi borgarstjóra og bæjarstjórunum verið falið að vinna frekar með tillögur Par-x. Þá segir Dagur að sér dugi ekki þau svör eins og veitt hafi verið á fundinum um að ekkert verði ákveðið í þessum efnum fyrr en eftir kosningar á næsta ári. „Mér finnst mjög mikilvægt að svona ákvarðanir séu ekki teknar án umræðu og frekari rökstuðnings hvað þá í leyni eða þá að menn ætli að skjóta þessu, eins og öðrum ákvörðunum, fram yfir kosningar," segir Dagur.
Tengdar fréttir Stendur ekki til að umbylta rekstri Strætós Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætós bs, segir að ekki standi til að ráðast í róttækar breytingar á rekstri byggðarsamlagsins. Hún segir ýmislegt jákvætt í nýlegum tillögum sem ráðgjafarfyrirtæki vann að beiðni stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. 7. nóvember 2009 14:00 Strætó bjóði út allan rekstur strætisvagna Rekstur á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verður boðinn út til einkaaðila, verði farið að tillögum Par-x viðskiptaráðgjafar IBM, sem skilað hefur skýrslu til stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. Mikill hallarekstur hefur verið á rekstri byggðarsamlagsins Strætó bs. Sveitarfélögin sem eiga Strætó leggja nú afar mikla áherslu á að þau þurfi ekki að bera neinar viðbótar byrðar vegna strætisvagnarekstursins. Meðal annars hefur verið brugðist við því með ákvörðun um að Strætó kaupi enga nýja vagna á næsta ári. 7. nóvember 2009 02:00 Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Stendur ekki til að umbylta rekstri Strætós Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætós bs, segir að ekki standi til að ráðast í róttækar breytingar á rekstri byggðarsamlagsins. Hún segir ýmislegt jákvætt í nýlegum tillögum sem ráðgjafarfyrirtæki vann að beiðni stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. 7. nóvember 2009 14:00
Strætó bjóði út allan rekstur strætisvagna Rekstur á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verður boðinn út til einkaaðila, verði farið að tillögum Par-x viðskiptaráðgjafar IBM, sem skilað hefur skýrslu til stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. Mikill hallarekstur hefur verið á rekstri byggðarsamlagsins Strætó bs. Sveitarfélögin sem eiga Strætó leggja nú afar mikla áherslu á að þau þurfi ekki að bera neinar viðbótar byrðar vegna strætisvagnarekstursins. Meðal annars hefur verið brugðist við því með ákvörðun um að Strætó kaupi enga nýja vagna á næsta ári. 7. nóvember 2009 02:00