Í fótspor Bítlanna og Zeppelin 5. nóvember 2009 03:45 wayne coyne Embryonic er fyrsta tvöfalda plata hljómsveitarinnar The Flaming Lips.
Bandaríska hljómsveitin The Flaming Lips hefur löngum verið talin með þeim skrítnari í tónlistarbransanum. Sýrukenndur og tilraunakenndur poppbræðingurinn hefur oft á tíðum hitt í mark hjá gagnrýnendum, sérstaklega með plötunum The Soft Bulletin og Yoshimi Battles the Pink Robots, og hljómsveitin á sér dyggan aðdáendahóp innan indí-geirans. Tólfta hljóðversplata The Flaming Lips, hin tvöfalda Embryonic, kom út fyrir skömmu og hefur fengið góða dóma hjá gagnrýnendum. Hún er sú fyrsta frá sveitinni í þrjú ár, síðan At War With the Mystics kom út við heldur misjafnar undirtektir. Flest laganna á Embryonic urðu til þegar þeir félagar spiluðu af fingrum fram á þáverandi heimili trommarans Stevens Drozd. „Í byrjun voru þessi djammlög oft ekkert sérlega spennandi. En stundum komu upp augnablik sem voru stórskrítin og á þeim byggðum við þessa plötu,“ sagði söngvarinn Wayne Coyne. Hann bætir við að á plötunni sé vaðið úr einu í annað, líkt og á frægum tvöföldum plötum Bítlanna og Led Zeppelin. „Meðal uppáhaldsplatnanna eru Hvíta albúmið, Physical Graffiti og meira að segja lengri plöturnar frá The Clash. Ástæðan er að hluta til sú að þar er enginn einn stíll og einn heildarsvipur var ekki aðalmálið. Það var einhvern veginn allt látið flakka,“ sagði Coyne. Á meðal þeirra sem aðstoða Coyne og félaga á nýju plötunni er hljómsveitin MGMT, sem spilar í laginu Worm Mountain, og Karen O, söngkona Yeah Yeah Yeahs, sem syngur í lögunum I Can Be a Frog og Watching the Planets.- fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira