Innlent

Slasaðist á mótorkrosshjóli

Maðurinn verður fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.
Maðurinn verður fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.
Karlmaður um fertugt slasaðist þegar að hann féll af mótorkross-hjóli sínu í Grímsnesi, skammt frá bænum Rofabæ, um hálffimmleytið í dag. Lögreglan á Selfossi segir að grunur leiki á að hann sé með hryggáverka en ekki er víst hversu alvarlegir þeir eru. Sjúkrabifreið er komin að manninum og mun flytja hann til skoðunar á slysadeild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×