Rauðakrosshúsið standsett - óska eftir húsgögnum 27. febrúar 2009 13:43 Sjálfboðaliðar að störfum í húsnæðinu í gær.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna nú hörðum höndum við að standsetja húsnæði í Borgartúni 25 þar sem Rauðakrosshúsið tekur brátt til starfa. Þar gefst fólki kostur á að koma inn af götunni og leita sér hjálpar í þeim þrengingum sem gengið hafa yfir þjóðina. Stefnt er að því að opna í næstu viku en Rauði krossinn auglýsir nú eftir góðhjörtuðum einstaklingum sem eru í aðstöðu til þess að láta húsinu í té skrifstofubúnað og annað þess háttar. „Okkur vantar stóla sem hægt er að stafla upp og skilrúm, það er svona það sem okkur vantar helst," segir Gunnhildur Sveinsdóttir hjá Rauða krossinum. „Svo þætti okkur mjög vænt um ef einhver gæti látið okkur hafa stórar plöntur svo við getum gert þetta svolítið huggulegt," segir Gunnhildur og bætir við að öll hjálp sé vel þegin. Gunnhildur segir að á meðal hlutverka Rauða krossins í neyðarástandi sé að sinna félagslegu neyðarstarfi. „Hugmyndin á bak við Rauðakrosshúsið er að skapa aðstöðu fyrir alla, ekki bara fyrir atvinnulausa, þar sem fólk getur leitað eftir sálrænum stuðningi og fengið upplýsingar um öll þau úrræði sem eru í gangi." Í raun er um einskonar útvíkkun á hjálparsíma Rauða krossins, 17 17, að ræða að sögn Gunnhildar. „Við fáum ríflega 70 hringingar á hverjum degi þar sem fólk er að leita eftir ráðleggingum um hvert það geti leitað í núverandi ástandi." Hugmyndin er því að byggja ofan á þetta með því að gefa fólki kost á að koma við og ræða við sérfræðinga á vegum samtakana. „Hér verða sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar og prestar sem eru í áfallateymi Rauða krossins sem geta veitt fólki sérfræðiviðtöl en sú þjónusta verður ókeypis. Kirkjan verður einnig í samstarfi við okkur og með fulltrúa á staðnum," segir Gunnhildur. Að sögn Gunnhildar stendur einnig til að koma á fót námskeiðum og hópastarfi í húsnæðinu í framtíðinni. „Það á eftir að mótast eftir því hvaða hugmyndir gestir hússins hafa. Svo verða tölvur hérna og aðgangur að Interneti, barnahorn og kaffiaðstaða," segir Gunnhildur ennfremur og bætir því við að ýmsar pælingar séu í gangi varðandi framtíðina. Stefnt er að því að opna Rauðakrosshúsið í Borgartúni 25 í lok næstu viku. Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta hringt í 570 4000 á skrifstofutíma eða sent póst á raudakrosshusid@redcross.is.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira