Skrifað undir Icesave á morgun - harðsótt niðurstaða 18. október 2009 15:57 Jóhanna Sigurðardóttir.
Fréttafundi var að ljúka á Alþingi um nýtt Icesave-samkomulag en að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur verður skrifað undir sameiginlegt samkomulag Íslands, Bretlands og Hollands á morgun. Þá mun einnig verða gefin út sameiginleg yfirlýsing fjármálaráðherra allra landanna. Það sem mestu skiptir í yfirlýsingunni er að lagalegur vafi á réttmæti þess að Íslendingar eigi að ábyrgjast reikninganna er viðurkenndur. Þá fallast Hollendingar og Bretar á alla þá fyrirvara sem lúta að sjálfstæði þjóðarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á fundinum að niðurstaðan sem liggur fyrir sé ásættanleg og að lengra hafi málið ekki komist. Í hennar hugar er það mikilvægara fyrir hagsmuni þjóðarinnar að klára þetta mál heldur en að skilja það eftir í uppnámi. Undirskriftin á morgun þýðir að það losnar bæði um Norðurlandalánin sem og endurreisnaráætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að sögn Jóhönnu. Það mun svo aftur hafa jákvæð áhrif á stöðugleikasáttmálann þar sem Seðlabanki Íslands getur þá farið að lækka stýrivexti og draga úr gjaldeyrishöftum. Hún sagðist búast við því að stjórn AGS muni taka fyrir mál Íslands á fundi í þessum mánuði. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að niðurstaðan hafi verið harðsótt. Það hafi ekki náðst sátt fyrr en á allra síðustu dögum. Þá sagði Steingrímur að niðurstaðana feli í sér að gerður verði viðaukasamingur við Icesave-samninginn. Inn í hann verða fyrirvararnir sem samþykktir voru í lok ágúst á Alþingi, færðir. Þá féllust Bretar og Hollendingar á fyrirvara sem lúta að sjálfstæði þjóðarinnar og eignum hennar svo sem orkulindunum.
Mest lesið Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Merkúr Máni sótti brons á Ólympíuleikunum í líffræði Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Erlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent Virknin minnkað þó áfram gjósi Innlent Fleiri fréttir Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Sjá meira