Indriði H. Þorláksson: Niðurstaða fengin í flestum atriðum Icesave Guðný Helga Herbertsdóttir. skrifar 18. október 2009 10:05 Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Niðurstaða er fengin í flestum atriðum í Icesave samningnum á milli íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda, segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Hann segir þó að enn eigi eftir að ganga frá lausum endum sem séu aðallega tæknileg atriði varðandi samninginn. Í Morgunblaðinu í dag er fullyrt að fyrirvörum þeim sem Alþingi samþykkti í sumar verði breytt og að Íslendingar taki á sig auknar byrðar frá því sem þá var gert ráð fyrir. Stjórnvöld hafi þannig fallist á að ekki verði hætt að greiða af Icesave-skuldabréfunum árið 2024 heldur verði upphæðin greidd að fullu. Þá munu Bretar og Hollendingar hafa fallist á að hægt verði að fara með málið fyrir dóm til að láta reyna á greiðsluskyldu Íslands en á hinn bóginn hefði niðurstaða dómsins, þótt hann yrði Íslendingum í hag, ekki sjálfkrafa þau áhrif að greiðslur falli niður. Aðeins yrði sest aftur að samningaborði. Indriði segir niðurstöðuna ekki fela í sér auknar byrðar fyrir Íslendinga. Það hafi alltaf legið fyrir að ekki yrði hætt að borga árið 2024 og að teknar yrðu upp viðræður að nýju ef dómsniðurstaða yrði Íslendingum í hag. Hann vildi þó litlu svara um það hvort að ákvæðið sem kennt er við Ragnar Hall og kveður á um forgangsröð krafna sé áfram inni líkt og fyrirvararnir gerðu ráð fyrir. Í Morgunblaðinu segir að komist ESA, eftirlitsstofnun EFTA að þeirri niðurstöðu að það stangist á við evrópskan rétt falli þetta ákvæði úr gildi og breytir þá engu þótt niðurstaða Hæstaréttar Íslands yrði á þá leið að ákvæðið héldi. Boðað hefur verið til ríkisstjórnarfundar í hádeginu og þá mun fjárlaganefnd einnig koma saman í dag. Þá verður einnig boðað til blaðamannafundar síðar í dag til að kynna niðurstöðuna.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira