Innlent

Eldur í húsi hústökumanna

Eldur kviknaði í húsi á Skólavörðustíg nú rétt fyrir þrjú í dag. Að sögn varðstjóra er mikill viðbúnaður vegna brunans en sjúkrabílar og slökkviliðsbílar eru ýmist á leiðinni á vettvang eða eru komnir.

Húsið var tekið yfir af húsatökumönnum fyrir nokkrum mánuðum síðan. Þar starfrækja þeir meðal annars fríbúð. Eigandi hússins gaf þeim leyfi að búa í húsinu en það var í niðurníðslu áður.

Ekki var hægt að fá frekari upplýsingar að svp stöddu en Vísir mun fylgjast með málinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×