Innlent

Innbrotsþjófar í Vesturbænum: Stálu bíllyklum og bifreið

Brotist var inn í tvö íbúðarhús við Frostaskjól í vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Tveimur fartölvum var stolið, þremur farsímum og bíllyklum. Í kjölfarið var bifreið sem stóð við annað húsið tekin og óku ræningjarnir á brott.

Samkvæmt upplýsingum fra lögreglu upplýstist málið hinsvegar þegar leið á daginn og eru þrír aðilar grunaðir í málinu.

Lögreglan er þegar komin með megnið af þýfinu auk bíllyklanna en bíllinn er ófundinn.

Verið er að vinna í því að fá mennina til þess að vísa á bílinn og er málið enn í rannsókn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×