Innlent

Arnarnesræningjar áfram í gæsluvarðhaldi

Annar mannanna leiddur fyrir dóm þegar þeir voru handteknir.
Annar mannanna leiddur fyrir dóm þegar þeir voru handteknir. MYND/Vilhelm
Tveir karlmenn sem sem réðust inn á heimili aldraðra hjóna á Arnarnesi á kosninganótt og héldu þeim föngum á meðan þeir fóru ránshendi um húsið verða áfram í gæsluvarðhaldi. Lögregla fór fyrr í dag fram á að gæsluvarðahald þeirra þeirra yrði framlengt á grundvelli almannahagsmuna. Þeir verða í gæsluvarðhaldi til 16. júní.

Mennirnir hafa játað aðild sína að árásinni sem var mjög gróf og var hjónunum meðal annars hótað lífláti. Þá var klippt á símasnúrur til að varna því að þau gætu hringt á hjálp.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×