Frikki Weiss fagnar afmæli Laundromat með stæl 25. ágúst 2009 19:30 Friðrik Weisshappel fagnar þriggja - og fimm ára afmæli Laundromat.
Athafnamaðurinn geðþekki, Friðrik Weisshappel, fagnar nú þriggja - og fimm ára afmæli kaffihúsa sinna, Laundromat, í Kaupmannahöfn. Af því tilefni býður hann gestum og gangandi að kaupa kaffibollann á þrjár krónur, á staðnum sem er þriggja ára, og fimm krónur á staðnum sem er fimm ára. Friðrik rekur tvö kaffihús í Kaupmannahöfn. Fyrir fimm árum opnaði hann á Elmegade á Norðurbrú og tveimur árum seinna opnaði hann annað á Árósagötu á Austurbrú. Friðrik fagnaði afmæli kaffihúsana með sama hætti í fyrra við frábærar undirtektir. Þá seldust hvorki meira né minna en 5.100 kaffibollar - á Austurbrúnni einni. Staðurinn skreyttur í bak og fyrir af þessu tilefni og hátíðarandinn svífur yfir vötnum. Fjallað var um þetta uppátæki Friðriks á vefsíðunni Alt om Kobenhavn, eða www.aok.dk, en það er ein vinsælasta heimasíðan í Danmörku. „Ég er að stórtapa, en þetta er snöggt að koma til baka þegar maður kemst á forsíðu aok," segir Friðrik léttur í bragði. „Þó að þetta kosti eitthvað, þá skiptir það ekki máli ef maður er að halda afmæli á annað borð." Hann segir að auk þess fái hann fjölda nýrra viðskiptavina í kjölfarið. „Það kom einn gamall maður og fékk sér kaffi á afmælinu í fyrra og hefur komið alla daga síðan. Þessi eini maður gerir þetta þess virði." Á vefsíðunni AOK.dk grínast Friðrik með að hann muni loksins sjá gróða þegar staðurinn er orðinn fimmtíu ára, og hann geti selt bollann á fimmtíu krónur. „Það er nú bara grín. Ég ætla festa þetta í fimm krónum. Fimm er lukkutalan mín," segir hann. Afmælisveislan stendur yfir í þrjá daga, eða til lokunar á fimmtudag. Friðrik segir reksturinn ganga vel. „Í ágúst þá náðum við að hundraþúsundasta wekend brönsinn frá upphafi. Af því tilefni ætlum við að gefa öllum þeim sem fá sér bröns í september mímósa." Sjálfur er Friðrik nýkominn frá Íslandi þar sem hann heimsótti föður sinn meðal annars. „Hann var veikur þegar ég gifti mig í sumar og gat því miður ekki komið í brúðkaupið. Við ákváðum því koma með brúðkaupið til hans," segir Friðrik léttur í bragði.
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira