DV dæmt til þess að greiða skaðabætur 11. júní 2009 11:49 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Fyrrverandi blaðamaður DV, Trausti Hafsteinsson, var dæmdur til þess að greiða Áslaugu Herdísi Brynjarsdóttur sjö hundruð þúsund krónur fyrir frétt sem hann skrifaði í DV í ágúst árið 2007. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Áslaug höfðaði einnig mál á hendur Hauki Arnþórssyni sem var í viðtali við blaðið. Í dómsorði segir að hann hafi ekki verið ábyrgur fyrir greinaskrifunum þar sem hann samþykkti ekki viðtalið sérstaklega né fékk hann að lesa það yfir fyrir birtingu. Fréttin fjallaði um að eiginmaður Áslaugar, Ingjaldur Arnþórsson, hafi rekið meðferðarheimili að Laugalandi í Eyjarfirði ásamt Áslaugu. Þar var sagt frá því að hann hefði í þrígang verið tilkynntur til barnaverndaryfirvalda á Akureyri. Í kjölfarið kærði Ingjaldur greinahöfundinn Trausta til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands sem fann hann sekan um að hafa orðið uppvís af alvarlegu broti. Í dómsorði segir að Haukur á að hafa látið falla ummæli um Áslaugu um að hún hefði reynt að svipta sig lífi. Alls féllu sex ummæli þess eðlis en Áslaug var þó aldrei nefnd á nafn í greininni. Aftur á móti kom fram að hún væri eiginkona Ingjalds og því nafnleyndin til lítils. Í niðurstöðu dómsins segir orðrétt: „Með öllum framangreindum ummælum, sem að mati dómsins tekur þó ekki til annarra ummæla sem um það eru tilgreind, er á grófan hátt brotið gegn friðhelgi einkalífs stefnanda. Með því að skírskota á ýkjukenndan og einkar óviðfelldinn hátt til andlegra veikinda stefnanda, slíkra sem sætt hafa almennum fordómum og mun svo enn vera að nokkru marki, er freklega vegið að æru stefnanda með móðgunum [...]." Haukur Arnþórsson var sýknaður en Trausti skal greiða Áslaugu 700 þúsund krónur og málskostnað hennar upp á 450 þúsund krónur.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira