Reiknar með að einhverjir þingmenn VG styðji aðildarumsókn Heimir Már Pétursson skrifar 12. maí 2009 21:31 Steingrímur J. Sigfússon
Formaður Vinstri grænna reiknar með að einhverjir þingmenn muni greiða aðildarumsókn að Evrópusambandinu atkvæði sitt. Engir hlekki verði settir á þingmenn flokksins og vonandi eigi það einnig við þingmenn annarra flokka. Það er við hæfi að á fyrsta ríkisstjórnarfundinum úti á landi ræddi ríkisstjórnin um samræmda sóknaráætlun fyrir landsbyggðina en forsætisráðherra kynnti einnig fjögur frumvörp um lýðræðisumbætur sem stjórnin vill fá í gegnum þingið. Ekkert af þeim málum komst í gegn fyrir kosningar en ríkisstjórnin er staðráðin í að koma þeim málum í gegnum sumarþingið. „Ég geri mér vonir um að þetta fari í gegn. Á síðasta þingi var ljóst að fjórir af fimm flokkum voru sammála um að koma átti á stjórnlagaþingi en Sjálfstæðisflokkurinn var á móti," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. „Við ætlum ekki að gefast upp á þessum lýðræðisumbótum sem minnihlutstjórnin reyndi að koma í gegn en Sjálfstæðisflokkurinn kom því miður í veg fyrir," sagði Steingrímur J. Sigfússon. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sagði í útvarpi í dag að nokkrir liðsmenn vinstri grænna hefðu greinst ESB-jákvæðir. Aðspur hvort hægt væri að upplýsa um hverjir innan þingflokksins þetta væru sagði Katrín: „Ég var þarna að vísa til flokksins en ekki þingflokksins en þessi tillaga mun að sjálfsögðu hljóta þinglega meðferð." Steingrímur J. Sigfússon býst allt eins við því að einhverjir þingmenn greiði þingsálykturnatillögunni atkvæði sitt. „Að sjálfsögðu geri ég það og þaðv erður ekki farið í neina hausatalningu í því. Það er alveg skýrt að samviska hvers og eins ræður þarna og það verða engin handjárn og engir hlekki. Betra er að aðrir þingflokkar geri það líka."
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira