Barnabókahöfundar á þingi 6. nóvember 2009 03:15 Höfundar á þingi Margrét Tryggvadóttir hlaut barnabókaverðlaun árið 2006 fyrir bók sína. Fyrsta barnabók Guðmundar er komin í bókaverslanir. fréttablaðið/gva
Þingmennirnir Guðmundur Steingrímsson og Margrét Tryggvadóttir skiptust á barnabókum fyrr í vikunni. Bók Guðmundar um Svínið Pétur kemur út fyrir jól en bók Margrétar, Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar, hlaut barnabókaverðlaun árið 2006. Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar fjallar um prinsessu í fjarlægu konungsríki á meðan bók Guðmundar fjallar um svínið Pétur sem er ekki gráðugt heldur er sátt við sína stöðu. „Það rann upp fyrir okkur ljós að við vorum bæði barnabókahöfundar, hún Margrét er reyndar eldri í faginu en ég og við ákváðum í kjölfarið að skiptast á bókum og gerðum það í gær þegar ljósmyndari átti leið hjá. Margrét fékk bókina Svínið Pétur eftir mig og ég fékk prinsessubókina hennar í staðinn,“ segir Guðmundur, en þetta er fyrsta barnabók hans. „Bókin fjallar um svínið Pétur sem er ekki gráðugt, hin dýrin í Dýrabæ bjóða honum gull og græna skóga ef hann vill gefa þeim eitthvað í skiptum en Pétur lætur ekki ginnast. Þetta er í raun gömul saga í nýjum búningi og var skrifuð í góðærinu og ber þess kannski merki hvað höfundur var orðinn þreyttur á þeim dansi.“ Guðmundur segir bókina hafa fengið góða dóma frá fimm ára dóttur sinni og var boðskapur bókarinnar mikið ræddur. „Bókin fékk góða dóma hjá dóttur minni, sem er líka mjög ánægð með prinsessubókina hennar Margrétar,“ segir Guðmundur sem tekur ekki fyrir að annarrar bókar megi vænta frá honum. „Ef mér gefst tími til þess á milli þingstarfa er ekki ólíklegt að ég skrifi fleiri bækur um svínið Pétur.“ - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira