Nicky Butt sagði Owen fyrst frá áhuga United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. september 2009 10:00 Michael Owen, leikmaður Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Michael Owen hefur greint frá því að það var Nicky Butt, félagi hans hjá Newcastle, sem benti honum fyrst á að Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefði áhuga á honum. Owen sagði þetta í löngu viðtali við The Daily Telegraph sem má lesa hér. Hann sagði að honum hafi liðið eins og að hann væri í blindgötu þegar hann var hjá Newcastle en samningur hans við félagið rann út í haust. „Ég er enn aðeins 29 ára gamall en hefði þess vegna geta verið á fimmtugsaldri miðað við hvað fólk hefur verið að segja um mig," sagði Owen. „Ég var viss um að einhver þurfti á sóknarmanni að halda - einhverjum sem væri búinn að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni." Skömmu síðar hringdi Nicky butt, félagi hans hjá Newcastle, í hann og sagði honum að Alex Ferguson hefði haft samband við sig. Butt lék hjá United á sínum tíma. „Nicky sagði að ég mætti alls ekki segja neinum frá því, sérstaklega ekki stjóranum, en hann hefði hringt og væri að spyrja hvernig ég hefði verið að æfa," sagði Owen. „Konan mín var í hinu herberginu og ég byrjaði bara að öskra á hana. Við vorum virkilega spennt, bæði tvö." Svo hringdi Ferguson. „Um leið og hann sagði „Michael" vissi ég að þetta væri hann. Það var ekki um að villast. Hann sagði að félagið væri að leita af sóknarmanni þar sem Carlos Tevez væri að fara. Það hefði ekki tekist að landa Karim Benzema og því væri hann að leita af leikmanni sem gæti skorað mörk." Owen hefur þegar reynst United happafengur því hann skoraði sigurmark United í dramatískum 4-3 sigri liðsins á Manchester City fyrir skömmu. Owen segir einnig í viðtalinu að hann hafi ekkert breyst á undanförnum árum og stefnir að því að vinna sér sæti í enska landsliðinu. „Ég er 100 prósent enn sami leikmaður og ég var í München," sagði hann og átti þá við þegar hann skoraði þrennu í 5-1 sigri enska landsliðsins á því þýska árið 2001.
Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira