Reikningur frá brúðkaupi aldarinnar fyrir dóm 6. október 2009 07:00
Viðburðafyrirtækið Élan productions hefur höfðað skuldamál á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Pálmadóttur vegna brúðkaups þeirra sem fyrirtækið skipulagði. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudaginn. Einar Þór Sverrisson, lögmaður þeirra hjóna, sagði í samtali við Fréttablaðið að málið snerist um lokagreiðslu og það væri ágreiningur um uppgjör. Eiríkur Gunnsteinsson, lögmaður Élan hér á landi, vildi lítið tjá sig um málið. Hann vildi ekki gefa upp hversu háar fjárhæðir væri um að ræða og útilokaði ekki að samið yrði um málið utan dómstóla. Í sama streng tók Einar og bætti við að ekki væri um verulegar fjárhæðir að ræða, búið væri að borga alla aðra reikninga. Brúðkaup Jóns Ásgeirs og Ingibjargar vakti mikla athygli en þau giftu sig 17.nóvember í Fríkirkjunni fyrir tveimur árum. Élan sá um alla skipulagningu brúðkaupsins og í frétt Fréttablaðsins kom fram að starfsfólk fyrirtækisins hefði flutt heilmargt inn í tilefni af brúðkaupinu, allt frá blómaskreytingum til kokka. Garðar Thor söng fyrir gesti Fríkirkjunnar en hún hafði verið haganlega skreytt í takt við stíl og smekk brúðhjónanna. Séra Hjörtur Magni gaf þau saman. Glæsilegur Rolls Royce-Phantom ferjaði hin nýgiftu hjón yfir í Hafnarhúsið þar sem sungið var og trallað langt fram á nótt undir taktföstum slætti Gus Gus. Nánast allir forkólfar viðskiptalífsins mættu til að samgleðjast þeim, nægir þar að nefna Hreiðar Má, Hannes Smárason, Lárus Welding og Björgólf Guðmundsson.
Mest lesið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira