Innlent

Röng skilaboð að fara ekki utan

Rósa Guðbjartsdóttir
Rósa Guðbjartsdóttir

„Með fullri virðingu fyrir mikilvægi þess að rækta vinabæjartengsl þá hef ég lýst þeirri skoðun minni á fundum bæjarráðs að mér finnist það sérkennileg forgangsröðun að ætla að fara í ferð sem þessa í því efnahagsástandi sem nú er,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir um ferð á vegum Hafnarfjarðarbæjar á vinabæjarmót í Uppsala í Svíþjóð.

Lagt var upp í ferðina í gær. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir að venjan sé sú að senda flokk ungmenna og nú sé það leiklistarflokkur ungs fólks sem undirbúið hafi sig frá því í fyrrahaust. Með eru tveir leiðbeinendur, tveir embættismenn og tveir bæjarfulltrúar; einn frá Samfylkingu og einn frá VG.

Sjálfstæðismenn sendu ekki sinn fulltrúa til Uppsala. „Ég tel að þegar við blasir niðurskurður þá séu ýmis önnur verkefni í sveitarfélaginu brýnni og ég er sannfærð um að flestir Hafnfirðingar séu sammála mér í því,“ segir Rósa.

Lúðvík segir kostnað bæjarsjóðs af farseðlum verða um hálf milljón króna. Uppsala borgi uppihald og að auki fáist styrkur frá Evrópusambandinu.

Bæjarstjórinn segir að áður fyrr hafi öllum bæjarfulltrúum staðið til boða að fara á þetta vinabæjarmót. Í ljósi ástandsins sé þátttakan nú takmörkuð við einn fulltrúa frá hverjum flokki. Óþarfi sé að ýta undir ranghugmyndir ytra um ástandið á Íslandi. „Við tókum þá ákvörðun að það væru röng skilaboð gagnvart vinaþjóðum og samstarfsþjóðum á Norðurlöndum að við værum í þeirri stöðu að við gætum ekki sent formlega fulltrúa frá okkur,“ segir Lúðvík Geirsson.

- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×