Innlent

Fyrstu síldarfarmarnir væntanlegir til lands

Fjölveiðiskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds eru væntanleg til Hafnar í Hornafirði klukkan tvö í dag með fyrstu síldarfarmana í ár, úr norsk-íslenska síldarstofninum. Afli skipanna er samtals tvö þúsund og þrjú hundruð tonn og stendur til að frysta sem mest af honum til manneldis. Aflann fengu skipin í eitt flottroll sem þau drógu saman. Veiðislóðin er djúpt norðaustur af landinu og eru nokkur skip komin þangað og fleiri eru á leiðinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×