Forsætisráðherra hringdi í nöfnu sína Heimir Már Pétursson. skrifar 17. maí 2009 12:07
Þrjátíu og fjögur lönd af fjörtíu og tveimur sem greiddu atkvæði í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í gærkvöldi, gáfu íslenska laginu stig og tryggðu Jóhönnu Guðrúnu þannig annað sætið í keppninni. Forsætisráðherra hringdi í nöfnu sína í gærkvöldi og óskaði henni til hamingju og forsetahjónin sendu henni og fylgdarliði hamingjuóskir sínar. Þrjú lönd, Malta, Írland og Noregur gáfu lagi Jóhönnu Guðrúnar, Is it True, tólf stig í Söngvakeppni Evrópu í gærkvöldi. En í æsispennandi stigagjöf barðist Jóhanna við Aserbaídsjan um annað sætið í keppninni.Síðasta þjóðin til að greiða atkvæði voru Norðmenn sem innsigluðu annað sætið fyrir Jóhönnu þegar þeir gáfu laginu Is it True tólf stig og lagi Aserbaídsjans tíu stig.Svíar gáfu íslenska laginu tíu stig en í vefútgáfu Svenska dagbladet í gærkvöldi var Norðmönnum óskað til hamingju með sigurinn og jafnframt fullyrt að íslenska lagið hafi verið best. Norska lagðið sigraði keppnina með yfirburðum og sló stigamet í keppninni með 387 stig. Ísland var með 218 stig í öðru sætinu og Aserbaídsjan í því þriðja með 207 stig. Norska þjóðin fær sigurinn í þjóðhátíðargjöf, því þjóðhátíðardagur þeirra er í dag og verður Alexander Rybak því vafalaust fagnað sem þjóðhetju þegar hann kemur heim til Noregs í dag.Árangur Jóhönnu er að minnsta kosti jafngóður ef ekki betri en árangur Selmu Björnsdóttur sem einnig varð í öðru sæti í Eurovision árið 1999. Selma fékk 146 stig á sínum tíma en Jóhanna 218 stig eins og áður sagði og hefur Ísland aldrei fengið fleiri stig í keppninni.Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í gærkvöldi Jóhönnu Guðrúnu, höfundum og flytjendum íslenska lagsins hamingjuóskir frá sér og Dorrit. Í kveðjunni sagði forseti einnig að íslenska þjóðin samfagnaði þeim innilega og væri afar stolt af árangri þeirra. Jóhanna og fylgdarlið hennar eru væntanleg heim til Íslands síðar í dag.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Sjá meira