Innlent

Dalai Lama flytur ávarp í Hallgrímskirkju

Dalai Lama, handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur leiðtogi Tíbeta, mun flytja ávarp á samtrúarlegri friðarstund í Hallgrímskirkju í tilefni af heimsókn hans til landsins í byrjun næsta mánaðar. Það er Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sem býður til friðarstundarinnar sem fer fram mánudaginn 1. júní og hefst klukkan 15. Fulltrúar kristinna kirkna og annarra trúarbragða lesa texta úr helgiritum, að fram kemur í tilkynningu. Friðarstundin er opin öllum.

Dalai Lama mun dvelja á Íslandi dagana 1. til 3. júní en þetta er fyrsta sinn sem hann heimsækir Ísland. Upphaflega var hann fenginn til landsins til að flytja fyrirlestur í Laugardalshöll. Það mun hann gera þriðjudaginn 2. júní. Í fyrirlestrinum un trúarleiðtoginn fjalla um lífsgildi, viðhorf og leiðir til lífshamingju ásamt því að svara fyrirspurnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×