Dæmdar 19 milljónir 22. maí 2009 06:00 Námsmannaíbúðir Byggingafélag námsmanna hefur byggt hús eins og þetta í Bólstaðarhlíð, þar sem íbúðirnar eru leigðar stúdentum.fréttablaðið/pjetur „
Þessi niðurstaða kemur okkur mjög á óvart. Við bjuggumst við því að málinu yrði vísað frá, þar sem við teljum manninn hafa orðið uppvísan að mjög vafasömum starfsháttum og gerst brotlegur við lög í starfi sínu fyrir félagið,“ segir Sigurður Grétar Ólafsson, formaður stjórnar Byggingafélags námsmanna. Félagið var á miðvikudag dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra laun í eitt ár. Sú upphæð, með orlofi, bílahlunnindum og mótframlagi í lífeyrissjóð, er rúmar nítján milljónir króna. Við það bætast dráttarvextir. Forsaga málsins er sú að fyrrverandi framkvæmdastjóranum, Friðriki Guðmundssyni, var vikið tímabundið úr starfi í desember 2007 í kjölfar innri endurskoðunar á rekstri félagsins. Í febrúar árið eftir var ráðningarsamningi við Friðrik rift af stjórn félagsins, sem tilgreindi að alvarlegar athugasemdir hefðu komið í ljós við yfirferð á bókhaldi, samningsgögnum og tengdum gjörningum. Vegna alvarlegra og vítaverðra brota í starfi taldi félagið sig ekki skuldbundið til þess að greiða Sigurði frekari laun eða tengd gjöld. Starfssamningur Sigurðar frá 1. október 2006 kveður á um að hann skyldi halda fullum launum og hlunnindum í tólf mánuði eftir starfslok, skyldi koma til uppsagnar af hálfu Byggingafélags námsmanna. Hann höfðaði því mál og krafðist auk þess skaðabóta, þar sem hann taldi málatilbúnað félagsins gjörsamlega haldlausan. Byggingafélagið krafðist lögreglurannsóknar á málum fyrri stjórnar. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hóf rannsókn í apríl í fyrra. Sigurður Grétar segir rannsókn efnahagsbrotadeildarinnar vera í fullum gangi. Stjórn Byggingafélagsins heyri í starfsmönnum deildarinnar reglulega og bíði eftir niðurstöðum hennar. Hann gerir ráð fyrir að dómnum sem féll á miðvikudag verði áfrýjað. Fyrst þurfi þó að bera málið fyrir stjórnina og fara yfir það með lögmönnum félagsins. kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira